Ívar Örn Indriðason

weblog

Bensínkóngar neita að aðlaga sig að breyttum markaðsaðstæðum

Ég bara verð að segja að ég skil ekki hvernig bensínkóngarnir ætlast til þess að komast í gegnum þessa niðursveiflu með því að láta allar verðhækkanir bitna á neytendum.  Held að þeim væri nær að draga saman í rekstri og ná þannig fram kostnaðarhagkvæmni, í stað þess að hækka álögur sínar til að mæta hækkandi fjármagnskostnaði.

Ég man þegar bensínstöðvar snerust nær eingöngu um þjónustu sem tengdist bifreiðum en þá var hægt að kaupa hluti eins og öryggi og perur í bíla.  Í dag labbar maður inná bensínstöðvar og þetta líkist matvörubúð meira en bensínstöð.  Nú má vel vera að þessi rekstur standi vel undir sér, ég veit ekkert um það, en mér finnst engu að síður líklegt, á meðan enginn heldur öðru fram, að þessi hærri fjármagnskostnaður stafi af einhverju leyti af þessu veitinga- og matvörurekstri. 

Einnig kemur mér á óvart að Atlantsolía skuli ekki vera mun ódýrari en þessar bensínstöðvar sem fjármagnskostnaður er að sliga.  Mér finnst þetta svo ótrúlegt að það eina sem mér dettur í hug er að bensínkóngarnir og Atlantsolía hafi náð samkomulagi um það að Atlantsolía “fái” að vera þessum 1-3 krónum ódýrari á hverjum tíma, en ef fyrirtækið breikki bilið meira, þá muni risarnir fara í verðstríð og keyra Atlantsolíu í gröfina.  Ég veit ekki, kannski er þetta algjört rugl, en mér finnst ótækt að bensínfélögin skuli öll vera að hækka álögurnar.  Bensínstöðvar sem eru með lítið sem ekkert umfang um reksturinn ættu að geta séð neytendum fyrir ódýrara bensíni en nú gerist.

Annars vona ég bara að Íslendingar taki sig á fljótlega og einbeiti sér að því að lækka olíuþörf landsins, með því að leiðandi stöðu á heimsmælikvarða í nýtingu vistvænnar orku.  En það er efni í aðra færslu, tek á því máli fljótlega.

júlí 15, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

Gleðilega páska og takk fyrir það liðna

Nú eru páskarnir sem betur fer búnir þannig að maður getur lagt sælgætið á hilluna.  Get nú samt ekki sagt að ég hafi etið mikið sælgæti yfir hátíðirnar, amk ekki páskaegg.  Hinsvegar gúffaði ég bland-í-poka nammi í mig eins og enginn væri morgundagurinn.

Ég skrapp til Svíþjóðar yfir páskana og fékk þar af leiðandi 9 daga með henni Ásu.  Sökum kulda, bæði hvað varðar veður og gengi krónunnar íslensku, þá héldum við okkur bara mestmegnis innanhús og lékum sófakartöflur, sem var bara alveg prýðilegt að mínu mati.  Mér tókst hinsvegar að festa kaup á ágætis íþróttafatnaði og fleiri prýðis ítemum þrátt fyrir óhagstætt gengi.  Héldum prýðispáska í gær þar sem við elduðum fläskfille og meððí.  Svo auðvitað opnuðum við páskaeggin okkar.  Þar sem ég er ekki mesti súkkulaðiaðdáandinn, þá fékk ég mér svona pínulítið egg í álpappír, bara uppá að fá málsháttinn.  Við fengum bæði bölvanlega lélega málshætti reyndar.  Svo lélega að við hreinlega skildum ekki hvað þeir þýddu, og þó teljum við okkur vera temmilega klár í kollinum.

Annars er það að frétta af heilsuátakinu að ég er alveg með buxurnar nið’rum mig.  Enda hófst heilsuátakið í mjög slæmri viku vinnulega séð, og svo fór ég til Svíþjóðar í 9 daga.  Ég er hinsvegar búinn að taka á því sem ég ætlaði ekki að taka á, en það er hvað ég set ofan í mig, bæði hvað varðar matarræði og kaffidrykkju.  Ég er búinn að vera alveg arfaslakur semsagt, þennan mánuð í átakinu, en það sem er alveg ótrúlegt, er að mig hlakkar til að fara í ræktina.  Það er tilfinning sem ég hef ekki haft síðan ég var í frjálsíþróttunum, sem var um svipað leiti og Ómar hafði hár, svo langt er síðan.

Höfum þetta ekki lengra í bili.  Ég bið ykkur vel að lifa.

mars 25, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

Heilsuátak hafið

Dagur 1

Um daginn fór formlega af stað heilsuátak hjá starfsmönnum FL Group.  Við höfum 3 mánuði til að koma okkur í skikkanlegt form og þeir sem ná bestum árangri fá einhver verðlaun frá starfsmannafélaginu. 

Þetta hófst allt með allskonar fitumælingum, vigtun, öndunarprófum og ég veit ekki hvað og hvað.  Það kom mér í raun á óvart hvað ég kom vel útúr öllum prófunum, amk miðað við það sem ég hafði ímyndað mér.  Ég er þó með ágætis motivation til að koma mér í ræktina og í dag hefst formlega mitt heilsuátak, en þá mun ég mæta í fyrsta átakstímann.

Ég skráði mig á átta vikna átaksnámskeið hjá World Class, og svo byrjar árskortið að tikka í framhaldi af því.  Ég vona að þessar átta vikur gagnist mér þannig að rífa mig yfir erfiðasta hjallan, sem eru fyrstu vikurnar á æfingum.  Í þessum hópi er mætingarskylda og mælingar og fleira í þeim dúr, sniðið að þeim sem eru að byrja á æfingum og vilja koma sér í form á skömmum tíma.  Þetta verður örugglega mjög erfitt, en ég hef lítið sem ekkert stundað íþróttir frá því ég hætti í frjálsíþróttum fyrir um átta árum síðan.

Nú er bara að vona að ég nái að rífa mig upp af rassgatinu.  Ég geri það með trompi því næstu átta vikurnar verð ég í íþróttabrölti alla virka daga.  Átak á mán, mið og fös, og svo er bolti á þri, og fim.  Ágætis prógram það fyrir mann sem hefur bara verið í bolta einu sinni í viku hingað til.

Ef ég lifi af tímann í kvöld mun ég kannski hripa inn nokkrar línur um það hvernig til tókst.

Annars vil ég bara enda þennan pistil á að hvetja alla til að fara á nýjustu Rambo myndina.  Þ.e. alla þá sem er ekki með veikt hjarta fyrir ofbeldi.  Annað eins ofbeldi hefur ekki sést á hvíta tjaldinu!  En Sly er svalur og hann rúllar þessari mynd upp.  Klárlega uppáhaldsmyndin mín í dag.

mars 3, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | 1 ummæli

Ruslara comment

Þegar ég færði síðuna yfir á WordPress, þá hóf spamvörnin ekki strax að stoppa ruslara komment.  Fyrir vikið söfnuðust hátt í 10.000 komment á hinar ýmsu greinar hjá mér.  Ég var að enda við að klára margra daga verkefni við að eyða þeim öllum út.  Mér er létt.   Ég er samt ekki frá því að ég þurfi að smella á einn af þessum linkum í ruslpóstunum og panta geðlyf.

febrúar 6, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | 2 Ummæli

Superbowl auglýsingar

Búinn að horfa á þær nokkrar.  Þessi er mitt uppáhald:

http://www.spike.com/video/2938226

Læt þessa svo fylgja með líka…

 http://www.spike.com/video/2938191/collection/25701/minisite/superbowl

febrúar 4, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | 1 ummæli

Stelpulegt símtal

Fannar hringdi í mig áðan og við spjölluðum dágóða stund.  Svo dágóða reyndar að eftir nokkurn tíma áttuðum við okkur á því að hvorugur okkar hafði eytt jafnlöngum tíma í eitt símtal í háa herrans tíð.  Amk jafntilgangslausu símtali, því við vorum bara að spjalla.  Þetta var án efa stelpulegasta símtal sem ég hef átt í hátt í 7-8 ár, en við töluðum saman í 27 mínútur.  Feginn er ég að lenda ekki oft í svona símtölum, þótt símtalið hafi verið hið ágætasta.  Hvað ætli maður hafi drepið margar heilasellur?

janúar 30, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

Jon Lajoie

Þessi maður er snillingur. Ég hef ekki hlegið jafnmikið í langan tíma.

janúar 30, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

4. desember 2007

Var að taka eftir því að þann 4. desember 2007 komu flestir gestir á síðuna mína frá upphafi.  Ekki get ég þó eignað mér það að allt þetta fólk skyldi hafa viljað lesa um mig, heldur FL Group, en þennan dag var kynnt um kaup FL Group á property portfolio Baugs Group og forstjóraskipti.  Greinilegt að FL Group hefur verið mikið googlað þennan dag.

janúar 29, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

Á Gunnar Hansson bara eitt sett af fötum?

Nei, væntanlega ekki…

Nú viðurkenni ég að ég hef svolítið verið að fylgjast með þættinum “Ertu skarpari en skólakrakki” í vetur og hef haft nokkuð gaman af.  Ég viðurkenni einnig fúslega að ég hefði nú ekki komist langt í þættinum, en það er margt sem gleymst hefur frá grunnskólaárunum.  Mér finnst þó ameríska útgáfan af þessum þáttum vera langtum betri en sú íslenska, en það er einkum vegna þess að kynnirinn í þeim amerísku er alveg frábær.  En ég ætlaði nú ekki að ræða það, heldur fötin hans Gunnars í íslensku þáttunum.

Í hverjum einasta þætti sem ég hef séð, þá er Gunnar klæddur í sömu fötin, sem og börnin í bekknum. 

Gunnar og rauða peysan

Nú veit ég vel, að ástæðan fyrir þessu er sú að þættirnir voru allir teknir upp á einum degi.  En það er tvennt sem ég hreinlega skil ekki.

  1. Nú gerðist það oft að þátturinn endaði á meðan þátttakendur voru enn að, og því ekkert annað að gera en að sýna restina af þættinum í næstu viku.  Þetta er greinilega tekið upp allt innan eins dags, og því skil ég ekki afhverju í ósköpunum Gunnar nefnir alltaf að nú sé vika frá því að þeir sáust síðast, að liðinn vika hafi verið viðburðarík og þar eftir götunum.  Þátttakendur spila meira að segja með og segja ýmist að vikan hafi verið þung, eða að margt hafi á daga þeirra drifið.  Það sést þó bersýnilega að það hafi ekki liðið vika frá upptökum, kannski 10-15 mínútur.
  2. Fyrst það var tekin ákvörðun um að haga þáttagerðinni svona, þ.e. að haga dialogue þannig að áhorfandi haldi að vika hafi liðið frá því að gesturinn mætti síðast, þá skil ég ekki hversvegna þáttastjórnandi, krakkar og þátttakendur eru ekki látnir skipta um föt. 

Ég vil því nota tækifærið og benda Skjá Einum á að passa upp á þetta ef fara á í framleiðslu á annari seríu af þáttunum.  Fleiri en eitt sett af fötum. 

janúar 29, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | Engin ummæli

Sænsk helgi

Þá er ég kominn heim eftir helgi í Svíþjóð með Ásu. Við áttum virkilega góða helgi saman en við tókum lífinu bara með ró, röltum um bæinn, skoðuðum nokkrar búðir og vorum á kaffihúsum. Við kíktum inn í Audi umboð og skoðuðum nýja Audi A4 módelið. Það er klárt mál að við ætlum að kaupa þennan bíl einn daginn, alveg ótrúlega flottur bíll.

Við fórum á alveg frábært steikhús sem er alveg ótrúlega vinsælt, enda alveg troðfullt þarna inni. Annars eins og ég sagði, þá tókum við það rólega og slökuðum á seinna kvöldið.

Heimferðin gekk vel, engar seinkanir í þetta skiptið, en hinsvegar verð ég að bitrast aðeins yfir íslenskum ökumönnum. Á Reykjanesbrautinni keyrði fólk eins og ég veit ekki hvað, þ.e.a.s. á 50 kílómetra hraða. Og ekki bara einn, heldur bara margir. Alveg ótrúlegt að fólk komist upp með svona ökulag.

Annars tekur núna við vesenis tími hvað varðar bílinn. Ég þarf að hringja í Heklu og fá þá til að laga rúðuþurrkurnar á bílnum, en þær tóku upp á því að eyðileggjast á föstudaginn, tveimur dögum áður en ábyrgðin rann út. Það mætti halda að að það væri einhverskonar timer á þessu. Þeir hljóta að tækla þetta fyrir mig, ég trúi ekki öðru..

janúar 28, 2008 Höfundur: ibbo | Daglegt líf | | 3 Ummæli